Eiríkur Guðni Þórarinsson hefur fengið félagaskipti til Víðis í Garði sem eru nýliðar í Grill 66 deildinni. Eiríkur Guðni er fæddur árið 2000 og alinn upp í yngri flokkum KR og svo hjá Val. Lék hann með öllum yngri landsliðum Íslands á sínum tíma. Leiktímabilið 2019/2020 lék hann til að mynda með HK en sumarið 2020 gerði hann 3 ára samning við FH. Eiríkur, sem er línumaður og sterkur varnarmaður, hefur hinsvegar ekkert leikið handbolta í nokkur ár en nú er ljóst að hann tekur fram skóna á nýjan leik og verður það án efa mikill liðsstyrkur fyrir nýliða Víðis í Grill 66 deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.