Gestur Alexander Hilmarsson hefur gengið í raðir Víðis og skrifað undir samning við félagið til ársins 2028. Víðir er nýliði í Grill 66-deild karla en liðið tryggði sér sæti í deildinni eftir góðan árangur á síðustu leiktíð. Gestur Alexander er öflugur og reynslumikill línumaður sem er uppalinn hjá HKR. Hann kemur til með að styrkja Víðisliðið beggja vegna vallarins en félagið bindur miklar vonir við hann á komandi tímabilum. „Þetta er stór og góður biti fyrir liðið á komandi tímabilum,“ segir meðal annars í tilkynningu Víðis. Félagið segir Gest Alexander verða mikilvægan hlekk í leikmannahópnum og mikinn feng fyrir liðið í baráttunni í Grill 66-deildinni. Víðir hóf tímabilið á stóru tapi gegn Gróttu í 1.umferðinni en liðið fær Haukar 2 í heimsókn á morgun næstkomandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.