Aganefnd HSÍ hafði í nógu að snúast eftir fyrstu leiki tímabilsins en alls komu níu mál inn á borð nefndarinnar. Tveir voru úrskurðaðir í eins leiks bann en ekki var aðhafst frekar í hinum sjö málunum. Guðrún Maryam Rayadh, leikmaður Víkings, fékk eins leiks bann vegna sérstaklega ódrengilegrar hegðunar í leik Víkings og Fram 2 í Grill 66-deild kvenna á sunnudaginn. Hún fékk útilokun með skýrslu í leiknum og töldu dómarar brotið falla undir reglu 8:11 b). Sigurgeir Jónsson, starfsmaður Vals 2, var einnig úrskurðaður í eins leiks bann. Hann fékk útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Fjölnis og Vals 2 í Grill 66-deild kvenna. Dómarar töldu brotið falla undir reglu 8:10 a). Leikbönn þeirra Guðrúnar og Sigurgeirs taka gildi í hádeginu, fimmtudaginn 10. september. Sjö önnur mál voru tekin fyrir hjá aganefndinni en í öllum tilfellum var niðurstaðan sú að ekki skyldi aðhafst frekar. Þeir Dagur Aron Jónsson, Víkingi 2, Dagur Fannar Möller, Fram, Jiri Kozdal, Víði, Tandri Már Konráðsson og Tóki Friðriksson, Stjörnunni, Tjörvi Týr Gíslason, Val, og Þorgeir Bjarki Davíðsson, Víkingi, fengu allir útilokun með skýrslu í leikjum síðustu daga en sluppu við leikbann að þessu sinni.Sjö fengu ekki frekari refsingu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.