Fjölnir hefur verið dæmdur 10-0 sigur gegn Hvíta riddaranum í 1. umferð Grill 66-deildar karla eftir að Hvíti riddarinn tefldi fram ólöglegu liði í leik liðanna. Hvíti riddarinn hafði betur gegn Fjölni þegar liðin mættust í 1. umferð deildarinnar en HSÍ hefur nú breytt úrslitum leiksins og skráð 10-0 sigur Fjölnis. Ástæðan er að Hvíti riddarinn var með of marga leikmenn á leikskýrslu sem höfðu einnig verið á skýrslu hjá Aftureldingu í síðasta leik liðsins í Olís-deild karla. Hvíti riddarinn og Afturelding eru venslalið en samkvæmt reglum HSÍ mega að hámarki fjórir leikmenn sem voru á skýrslu hjá móðurfélaginu í síðasta leik þess vera á leikskýrslu með venslaliðinu. Fimm leikmenn Hvíta riddarans höfðu hins vegar einnig verið á leikskýrslu Aftureldingar gegn Víkingi í fyrstu umferð Olís-deildar karla. Leikmennirnir fimm voru: Brynjar Búi Davíðsson, Sigurjón Bragi Atlason, Gísli Rúnar Jóhannsson, Haukur Guðmundsson og Leó Halldórsson. HSÍ hefur í kjölfarið breytt niðurstöðu leiksins og skráð Fjölni 10-0 sigur. Fjölnismenn fá því tvö stig úr fyrstu umferð Grill 66-deildarinnar þrátt fyrir að hafa tapað leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.