Landsliðsmaðurinn, Ýmir Örn Gíslason, fyrirliði og leikmaður Göppingen í þýsku Bundesligunni verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa brotnað á hendi. Það er Sport Bild sem greinir frá. Ýmir Örn varð fyrir meiðslunum í leik Göppingen gegn Melsungen 2. september og þurfti í kjölfarið að gangast undir aðgerð. Samkvæmt Sport Bild verður íslenski landsliðsmaðurinn frá keppni í nokkrar vikur. Fjarvera Ýmis Arnar er mikið áfall fyrir Göppingen enda gegnir hann lykilhlutverki í vörn liðsins auk þess að vera fyrirliði liðsins. Marcel Schiller tekur við fyrirliðabandinu á meðan Íslendingurinn er frá keppni. Eftir sigur gegn Erlangen í 1.umferðinni hefur Göppingen tapað síðustu tveimur leikjum sínum. Liðið mætir Hamburg á sunnudaginn í 4.umferð deildarinnar og Rhein Neckar Löwen í 5.umferðinni. Ljóst er að Ýmir verður ekki með í þeim leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.