Hvort við ætluðum að brotna og láta jarða okkur
Sævar Jónasson

Hrannar Guðmundsson þjálfari Aftureldingar var ánægður með að lið sitt hafi komið til baka og sótt stig á heimavelli gegn FH í 2.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi. Lokatölur 33-33.

FH náði mest fimm marka forystu í seinni hálfleik í stöðunni 20-15 og 21-16 en Mosfellingar reyndust sterkari aðilinn undir lokin og fengu tækifæri til að vinna leikinn í lokasókninni.

,,Ég er ánægður með það hvernig við komum til baka í seinni hálfleik. Við vorum fimm mörkum undir og það var hrikalega vel gert og karakter í liðinu. Við misstum menn út en við héldum alltaf áfram og náðum í eitt stig og hefðum hæglega getað unnið þetta líka."

Um miðbik seinni hálfleiks tók Hrannar leikhlé. Hvað sagði hann við liðið?

,,Við fórum yfir það hvort við ætluðum að brotna og láta jarða okkur en hvort við ætluðum að girða okkur í brók og gera eitt mark í einu og sjá hvert það myndi koma okkur. Það skilaði okkur stigi."

Hrannar segir að það sé ýmislegt sem hægt sé að fara yfir fyrir næsta leik liðsins en liðið mætir Haukum í 3.umferð Olís-deildarinnar á miðvikudaginn í næstu viku.

,,Það var ekkert perfect í þessum leik frekar en á móti Víking. Við höfum æft saman í tvo mánuði. Það er því nóg eftir til að bæta.”

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top