Yfirgaf uppeldisfélagið sitt – Langaði að breyta til
IBV

„Mig langaði að fara til Eyja“

Magnús Dagur Jónatansson segir að löngunin til að breyta til og spennandi umgjörð hjá ÍBV hafi ráðið mestu um óvænt félagaskipti hans frá uppeldisfélaginu KA.

Félagaskiptin komu nokkuð bratt upp en Magnús Dagur ákvað að grípa tækifærið þegar það bauðst.

„Mig langaði að breyta til og þegar sá möguleiki opnaðist að fara til Eyja ákvað ég að stökkva á það. Ég sé það sem frábært tækifæri til að þroska mig og reyna að bæta mig sem handboltamann.“

Hann segist spenntur fyrir því að takast á við nýjar áskoranir í Vestmannaeyjum.

„Í Eyjum er bæði frábært þjálfarateymi og góður æfingakúltur sem ég hlakka til að máta mig í. Samfélagið í Eyjum er líka þannig að það heillar að taka þátt í því.“

Magnús Dagur ræddi ekki við önnur félög áður en hann ákvað að ganga til liðs við ÍBV.

„Ég heyrði ekki í neinum öðrum félögum því mig langaði að fara til Eyja. Stjórn KA samþykkti að leyfa mér að fara og það er ekkert meira um það að segja í raun.“

Þrátt fyrir félagaskiptin verða tengslin við KA áfram sterk.

„KA mun áfram vera þar sem ræturnar liggja. Ég mun styðja þá áfram og vona að þeim gangi vel, fyrir utan 1. október og 4. febrúar,“ sagði Magnús Dagur og vísaði þar til leikja ÍBV og KA í Olís-deildinni.

Magnús Dagur lék sinn fyrsta leik fyrir ÍBV þegar liðið vann Selfoss í 2. umferð Olís-deildar karla í gær. Hann skoraði þrjú mörk í frumraun sinni fyrir Eyjamenn.

Rætt var um félagaskiptin í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top