Það var mikil spenna og mikil dramatík í Mosfellsbænum í gær þegar Afturelding og FH mættust í 2.umferð Olís-deildar karla. FH var með frumkvæðið lengi vel í leiknum og var tveimur mörkum yfir í hálfleik. Mest náði FH fimm marka foyrstu í seinni hálfleik í stöðunni 15-20 og 16-21 en lærisveinar Hrannars Guðmundssonar, þjálfara Aftureldingar voru ekki á þeim buxunum að láta rassskella sig og komu til baka og náðu að lokum að hirða annað stigið úr leiknum. Í stöðunni 31-31 og innan við fimm mínútur voru eftir af leiknum fékk Harri Halldórsson að líta rauða spjaldið eftir brot á Ómari Darra Sigurgeirssyni sem lá lengi vel eftir á vellinum og þurfti aðhlynningu sjúkraþjálfara í kjölfarið. Magnús Kári Jónsson og Kári Garðarsson dómarar leiks voru sammála um að brotið réttlæti rautt spjald og léku Mosfellingar því án síns lykilmanns síðustu mínútur leiksins. Brot Harra má sjá í spilaranum hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.