Í dag mættust Valur 2 og HK 2 í Grill 66 deild karla en leikið var á Hlíðarenda. HK-ingar byrjuðu mun betur og voru sterkari aðilinn fyrstu 20 mínúturnar. Valsarar sneru við taflinu og voru sterkari næstu 10 mínútur. Hálfleikstölur voru svo 21-19 fyrir Val. Mun minna var skorað í seinni hálfleik en leikurinn var jafn og spennandi í seinni hálfleik. Vals drengir voru þó aðeins grimmari og klókari á lokakaflanum og uppskáru sigur að lokum 30-28. Anton Máni Fransicso Heldersson varði eins og berserkur í liði Vals og tók 23 bolta. Bjarki Snorrason skoraði 7 fyrir Valsara. Hjá HK var Bjarki Sindrason markahæstur með 8 mörk. Patrekur Guðni varði 13 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.