Hægri skyttan í liði Fjölnis, Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson hefur ekki verið sjáanlegur hjá liði Fjölnis í fyrstu tveimur leikjum þeirra í Grill 66 deildinni. Það munar heldur betur um minna fyrir Fjölnis liðið enda var Aðalsteinn markakóngur Grill 66 deildarinnar í fyrra. Við settum okkur í samband við hann og spurðum hann hvers vegna hann væri ekki búinn að vera með í fyrstu 2 leikjunum. "Ég er að glíma við smá meiðsli. Fékk óheppilegt högg á æfingu fyrir rúmum 3 vikum. Þetta er annaðhvort brákað eða brotið rifbein. Vonandi verð ég ekki lengur frá en 2-3 vikur í viðbót" sagði Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson. Fjölnir hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Grill66-deildinni en var dæmdur sigur gegn Hvíta riddaranum í 1.umferðinni eftir að Hvíti riddarinn lék með ólöglegt lið. Fjölnir er því með tvö stig eftir tvær umferðir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.