Viggó vonast til að geta spilað á næstu vikum
Tom Weller /AFP

Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður og leikmaður HC Erlangen, stefnir á að snúa aftur á völlinn á næstu vikum eftir erfið meiðsli sem hafa haldið honum frá keppni frá því í mars.

Viggó meiddist í leik gegn Frisch Auf Göppingen þegar hann fann skyndilega fyrir miklum verk í hné við stefnubreytingu. Hann óttaðist strax að um krossbandsslit væri að ræða en segulómun daginn eftir sýndi ekkert alvarlegt.

„Ég var með smá beinmergsbjúg og reyndi að æfa í kringum það. En ég var alltaf með mikla verki og fór út um allt Þýskaland í alls konar meðferðir og sprautur. Ekkert virkaði og það komst aldrei upp hvað væri að,“ sagði Viggó í samtali við Morgunblaðið.

Viggó leitaði á endanum til Örnólfs Valdimarssonar, læknis íslenska landsliðsins, sem mælti með frekari rannsóknum og liðspeglun. Sex vikum eftir fyrstu myndatökuna fór Viggó aftur í segulómun og þá kom í ljós greinilegur brjóskskaði í hnénu. Hann gekkst undir aðgerð í lok maí.

„Það er auðvitað svekkjandi að það hafi tekið tvo mánuði að komast nákvæmlega að því hvað var að hrjá mig. En það þýðir ekkert að væla yfir því núna, þetta er liðin tíð. Mér finnst ég vera að ná mér vel og vonast til að geta spilað aftur á næstu vikum,“ sagði Viggó sem gengur í raðir Flensburg eftir tímabilið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top