Arnór Máni Daðason, markvörður Fram, verður að öllum líkindum ekki með liðinu þegar það tekur á móti ÍBV í 3. umferð Olís-deildar karla á miðvikudagskvöld. Arnór Máni glímir við tognun aftan í læri og missti af 47-40-sigri Fram gegn Val á föstudagskvöldið. LÉK Í OLÍS-DEILDINNI RÚMLEGA ÁRI EFTIR AÐ HANN BYRJAÐI AÐ ÆFA MARK Einar Jónsson, þjálfari Fram, staðfesti meiðslin í samtali við Handkastið. Hann sagði óljóst hversu lengi markvörðurinn yrði frá keppni en afar ólíklegt væri að hann næði leiknum gegn ÍBV. Fram hefur farið vel af stað á tímabilinu og skoraði 47 mörk í markaveislunni gegn Val. Liðið snýr aftur á heimavöll á miðvikudag þegar Eyjamenn koma í heimsókn. Heil umferð verður leikin í Olís-deild karla á miðvikudagskvöld en Framarar hafa hafið tímabilið á tveimur sigrum og gætu bætt þeim þriðja við, þegar liðið mætir ÍBV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.