KA vill ekki ræða brotthvarf Magnúsar Dags
Egill Bjarni Friðjónsson

Félagaskipti Magnúsar Dags Jónatanssonar frá KA til ÍBV í síðustu viku hafa vakið töluverða athygli innan handboltahreyfingarinnar og verið til umræðu í síðustu tveimur þáttum Handkastsins.

Handkastið hafði samband við Jón Heiðar Sigurðsson, formann handknattleiksdeildar KA, vegna málsins. Hann sagði stjórn deildarinnar í raun engu hafa við tilkynningu félagsins um brotthvarf Magnúsar að bæta.

„Maggi er bara farinn í ÍBV og var samið um það okkar á milli. Við óskum Magga bara góðs gengis,“ sagði Jón Heiðar við Handkastið en vildi ekki ræða málið frekar.

UNDARLEGUSTU FÉLAGASKIPTI SÍÐARI ÁRA

Magnús Dagur er uppalinn hjá KA og kom því mörgum á óvart þegar tilkynnt var um brotthvarf hans svo skömmu eftir að keppni hófst í Olís-deildinni.

Guðjón Guðmundsson, Gaupi, var meðal þeirra sem furðuðu sig á félagaskiptunum í nýjasta þætti Handkastsins.

„Þetta eru undarlegustu félagaskipti síðari ára. Einfaldlega vegna þess að Magnús Dagur er virkilega góður leikmaður. Hann spilaði mjög vel fyrir KA á síðustu leiktíð,“ sagði Gaupi meðal annars.

Sérfræðingurinn vakti þá athygli á orðalagi í tilkynningu KA um brotthvarf Magnúsar. Þar kom fram að KA og Magnús Dagur hefðu komist að samkomulagi um starfslok.

Sé tekið mið af því orðalagi virðist Magnús Dagur því hafa verið leystur undan samningi sínum við KA áður en hann gekk í raðir ÍBV og KA því ekki fengið greiðslu frá Eyjamönnum fyrir leikmanninn.

„Þetta er ekki leikmaður sem er 17. eða 18. leikmaður í hópnum. Þetta er fyrsti leikmaður inn af bekk og tímabilið er byrjað. Þarna þurfa KA-menn að þora að tjá sig um þetta mál. Þetta er lykilmaður í liðinu," bætti Sérfræðingurinn við. Félagaskiptin halda því áfram að vekja spurningar, en forráðamenn KA virðast að svo stöddu ekki ætla að tjá sig frekar um ástæður þess að leiðir félagsins og Magnúsar skildu svo skyndilega.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top