Sjáðu tilþrifin hjá Bjarna Ófeig gegn Víking
Egill Bjarni Friðjónsson

Bjarni Ófeigur Valdimarsson var markahæstur í liði KA í sigri liðsins gegn Víking í 2.umferð Olís-deildar karla um síðustu helgi.

KA verður í eldlínunni í kvöld þegar liðið mætir Þór í nágrannaslag fyrir norðan í 3.umferð deildarinnar.

Í nýjasta þætti Handboltahallarinnar var eitt af mörkum Bjarna Ófeigs í leiknum gegn Víking valið tilþrif þáttarins.

,,Það voru nokkur sem komu til greina en á endanum þá var það þetta hér sem vann. Bjarni Ófeigur Valdimarsson,” sagði Hörður magnússon þáttastjórnandi Handboltahallarinnar.

,,Þetta var ekki eini snúningurinn í umferðinni, þeir voru nokkrir góðir en það er mjúk skytta í yfirhandarfintu og snúningsklobbi. Þetta var geggjað,” sagði Vignir Stefánsson þegar hann lýsti tilþrifum vikunnar að mati Handboltahallarinnar.

Markið má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top