Árni Stef spáir í Akureyrarslaginn

Árni Jakob Stefánsson spáir í spilin fyrir Akureyrarslaginn KA-Þór sem fer fram í KA-heimilinu í kvöld kl. 19:00.

Árni þekkir bæði félög ákaflega vel. Lék hann handbolta og fótbolta fyrir KA og Þór. Og hefur þjálfað fyrir bæði félög.

Lengi vel lék hann knattspyrnu fyrir Þór í meistaraflokki og sumarið 1995 lék hann fyrir KA í næstefstu deild í knattspyrnu.

Árni var svo aðstoðarþjálfari Alfreðs Gíslasonar í liði KA á árunum 1991 til 1997. Fyrsta leiktímabilið 1991-1992 var hann spilandi aðstoðarþjálfari. Einnig aðstoðaði hann Atla Hilmarsson frá 1997-2000 með KA liðið. Tímabilið 2000-2001 tók hann svo við Þór sem lék þá í næstefstu deild.

2001 flutti hann svo suður til Reykjavíkur hvar hann hefur búið síðan. Gerði hann HK meðal annars að bikarmeisturum árið 2003 og hefur hann verið öflugur alla tíð að þjálfa yngri flokka síðan þá ásamt því að sinna kennslu og öðrum störfum.

Sjáum hvað Árni Stef hefur að segja:

"KA - Þór í KA-heimilinu verður hörkuleikur, bæði liðin eru töluvert breytt frá því á síðasta tímabili og verður gaman að sjá hvort fer betur af stað. Bæði liðin eru búin að vinna HK sannfærandi, KA vann Víking í hörkuleik og Þór tapaði fyrir sterku liði Fram. KA er búið að endurheimta Dag Árna Heimisson sem verður algjör lykilmaður hjá þeim í vetur ásamt Bjarna Ófeigi og Ágúst Elí. Það er helst að það vanti meiri breidd hjá liðinu til að þeir geri stóra hluti í vetur. Þórsarar hafa bætt við sig 4 Dönum sem virðast styrkja liðið mikið. Þeir og Hafþór og Þórður Tandri verða lykilmenn liðsins í vetur ásamt Hákoni í hægra horninu, sem fer vel af stað. Ég held að þessi leikur verði í járnum allan tímann og endi með jafntefli þar sem síðasta markið kemur í blálokin. Stórmeistarajafntefli á Akureyri"

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top