Pólska handboltagoðsögnin Karol Bielecki er snúinn aftur til Industria Kielce en að þessu sinni verður hlutverk hans langt frá handboltavellinum. Bielecki hefur verið ráðinn forseti KS Iskra Kielce, félagsins sem rekur pólska meistaraliðið Industria Kielce. Hinn 44 ára gamli Karol Bielecki tekur við starfinu af Paweł Papaj, sem hafði gegnt embættinu tímabundið en verður áfram í stjórn félagsins. Bielecki þekkir Kielce betur en flestir. Hann lék með félaginu í samtals ellefu tímabil, fyrst á árunum 1999 til 2004 og síðan aftur frá 2012 þar til hann lagði skóna á hilluna árið 2018. Á tíma sínum hjá Kielce varð Bielecki sjö sinnum pólskur meistari og fjórum sinnum bikarmeistari. Hápunkturinn kom árið 2016 þegar Kielce vann Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins. Nú snýr hann aftur í allt öðru hlutverki. Helsta verkefni Bielecki verður að styrkja fjárhagslegar og skipulagslegar stoðir félagsins. Eftir að leikmannaferlinum lauk hefur hann meðal annars rekið eigið fyrirtæki og hyggst nýta reynslu sína úr viðskiptalífinu til að laða að nýja styrktaraðila og samstarfsaðila. „Ég vil nýta þá reynslu sem ég hef öðlast eftir að leikmannaferlinum lauk, við rekstur á mínu eigin fyrirtæki og við að byggja upp tengsl við viðskiptalífið, til að þróa félagið,“ sagði Bielecki. Þriggja manna stjórn félagsins verður einnig skipuð Jakub Malke, reyndum stjórnanda úr íþróttaheiminum sem hefur fyrst og fremst starfað innan blaksins, auk þess sem Papaj verður áfram við stjórnarborðið. Þótt Bielecki taki nú við rekstrarlegu hlutverki ætlar hann sér ekki að draga úr íþróttalegum metnaði félagsins. Kielce er ríkjandi Póllandsmeistari og hefur um árabil verið meðal þekktustu félaga Meistaradeildarinnar. „Ég hjálpaði til við að ná árangri inni á vellinum og í dag vil ég enn gera það, bara í öðru hlutverki,“ sagði Bielecki.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.