Markahæstu leikmenn Olís karla eftir 2.umferð
Egill Bjarni Friðjónsson

3.umferðin í Olís-deild karla fer fram í kvöld þegar heil umferð verður leikin. Stórleikur umferðarinnar fer fram á Akureyri þegar KA og Þór mætast í KA-heimilinu klukkan 19:00.

Gunnar Róbertsson leikmaður Vals fór á kostum í síðustu umferð og skoraði 17 mörk í tapi liðsins gegn Fram. Þá skoraði ísak Logi Einarsson 14 mörk í tapi Stjörnunnar gegn Haukum. Þeir eru markahæstu leikmenn Olís-deildarinnar eftir tvær umferðir.

Leikir í 3.umferðinni:

18:00 Fram - ÍBV
18:30 HK - Valur
19:00 KA - Þór
19:15 FH - Víkingur
19:30 Haukar - Afturelding
19:45 Selfoss - Stjarnan

Hér má sjá markahæstu leikmenn Olís-deildar karla eftir 2.umferðina:

  1. Gunnar Róbertsson (Valur) - 26 mörk
  2. Ísak Logi Einarsson (Stjarnan) - 22 mörk
  3. Freyr Aronsson (Haukar) - 16 mörk
  4. Max Emil Stenlund (Fram) - 16 mörk
  5. Hákon Daði Styrmisson (Afturelding) - 16 mörk
  6. Andri Þór Helgason (HK) - 16 mörk
  7. Hákon Garri Gestsson (Selfoss) - 15 mörk
  8. Sigurður Páll Matthíasson (Víkingur) - 15 mörk
  9. Árni Bragi Eyjólfsson (Afturelding) - 15 mörk
  10. Arnór Snær Óskarsson (Valur) - 15 mörk

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top