Höllin í fókus í kvöld – Heil umferð í Olís deild karla
Jón Gautur Fótó

Heil umferð fer fram í Olís-deild karla þegar 3.umferðin fer fram.

Höllin í fókus verður í opinni dagskrá á LIVEY og Handboltapassanum í kvöld en útsendingin hefst klukkan 18:30.

Daníel Franz Davíðsson, Agnar Smári Jónsson og Einar Ingi Hrafnsson verða í settinu. Útsendarar verða á leikjunum í 3.umferðinni. Fylgst verður með allri umferðinni í Olísdeild karla, kíkt verður á vellina og margt fleira.

Hægt er að nálgast útsendinguna á, Rás 13, LIVEY Sport og Handboltapassanum.

,,Í opinni dagskrá — engin áskrift, allir með," segir ennfremur í tilkynningu frá HSÍ.

Leikir í 3.umferðinni:

18:00 Fram - ÍBV
18:30 HK - Valur
19:00 KA - Þór
19:15 FH - Víkingur
19:30 Haukar - Afturelding
19:45 Selfoss - Stjarnan

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top