Leik Fram og ÍBV í 3. umferð Olís-deildar karla, sem fram átti að fara í Úlfarsárdal í kvöld, hefur verið frestað til morguns vegna veðurs. Liðin áttu að mætast klukkan 18:00 í kvöld og átti viðureignin að vera fyrsti leikur umferðarinnar. Vaxandi ölduhæð í Landeyjahöfn setti hins vegar strik í reikninginn og ljóst varð að Herjólfur kæmist ekki í höfn í tæka tíð til þess að Eyjamenn næðu leiknum. Leiknum hefur því verið frestað um sólarhring og verður hann þess í stað leikinn á morgun, fimmtudag, klukkan 18:00. Þar með fara aðeins fimm af sex leikjum 3. umferðar Olís-deildar karla fram í kvöld. Umferðin hefst því á leik HK og Vals klukkan 18:30 í Kórnum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.