Brynjar Hólm Grétarsson sem skoraði þrjú mörk í kvöld ræddi við Handkastið í kvöld eftir góðan útisigur á erkifjendunum í KA en Þór vann leikinn 35-31 í gríðarlega kaflaskiptum leik. ,,Þetta verður ekki betra. Djöfull er þetta gaman. Þetta var alvöru leikur og djöfull er ég ánægður að við höfum klárað þetta maður." ,,Við erum fullir sjálfstrausts og lítum bara vel út finnst mér. Við þurfum aðeins að skerpa vörnina en það kemur bara og ég hef fulla trú á þessu liði í vetur." Þór hefur styrkt sig vel í sumar og fékk félagið til sín fjóra erlenda leikmenn og Brynjar Hólm Grétarsson segir að þeir hafi smellt inn í liðið frá fyrsta degi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.