Færeyski landsliðsmaðurinn Bjarni í Selvindi var ekki í leikmannahópi Vals þegar liðið vann HK, 38–29, í Kórnum á miðvikudagskvöldið í 3. umferð Olís-deildar karla. Bjarni meiddist í fyrri hálfleik í 47–40 tapi Vals gegn Fram í 2. umferð deildarinnar. Meiðslin komu í veg fyrir að hann gæti tekið þátt í leiknum gegn HK. Valur kom sér aftur á sigurbraut með öruggum sigri í Kórnum og er með fjögur stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. HK hefur hins vegar tapað öllum þremur leikjum sínum. „Smávægileg tognun í læri. Hann meiddist gegn Fram og spilaði ekki seinni hálfleikinn þar. Ég geri ráð fyrir að hann verði með í næsta leik,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, í samtali við Handkastið. Valur fær KA í heimsókn næsta föstudag. Liðin eru bæði með fjögur stig eftir þrjár umferðir og því um mikilvægan leik að ræða. Rætt var um leik Vals og HK í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.