
Allan Norðberg, leikmaður Vals, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann og missir þar af leiðandi af leik liðsins gegn KA í 4. umferð Olís-deildar karla á föstudaginn í næstu viku. Allan fékk rautt spjald með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í 47–40 tapi Vals gegn Fram 11. september. Dómarar leiksins töldu brotið falla undir reglu 8:6 b) og ákvað aganefnd HSÍ að úrskurða hann í eins leiks bann. Leikbannið tók gildi klukkan 12:00 í gær, 17. september. Allan lék um árabil með KA áður en hann gekk til liðs við Val og missir því af leiknum gegn sínum gömlu félögum. Valur og KA eru bæði með fjögur stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Guðlaug Einarsdóttir, leikmaður Gróttu 2, var einnig úrskurðuð í eins leiks bann vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í leik gegn Fjölni í Grill 66-deild kvenna. Hún missir því af leik Gróttu 2 og Fram 2 sem fram fer á sunnudaginn í Grill-66 deildinni. Ekki var aðhafst frekar í málum Brynjars Hólms Grétarssonar hjá Þór, Harra Halldórssonar hjá Aftureldingu og Loga Finnssonar hjá Val 2, sem allir höfðu fengið útilokun með skýrslu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.