„Við búum sem betur fer yfir þeim eiginleika að trúa því að við getum unnið leikina sama hversu svart útlitið er orðið,“ sagði Sigtryggur Daði Rúnarsson, leikmaður ÍBV, eftir ótrúlegan 33-30 sigur liðsins gegn Fram í lokaleik 3. umferðar Olís-deildar karla í gærkvöldi. Eyjamenn lentu í miklum vandræðum framan af leik og náðu Framarar upp góðu forskoti. Sigtryggur segir að ÍBV hafi einfaldlega ekki verið nægilega vel stemmt í upphafi. „Í stuttu máli sagt þá byrjuðum við þennan leik bara mjög flatt, bæði andlega og líkamlega. Við byrjuðum fyrstu mínúturnar af góðum krafti en eftir það datt ákefðin niður hjá okkur á báðum endum vallarins og við vorum alls ekki að tengja okkar á milli.“ Framarar nýttu sér það og náðu góðri stjórn á leiknum. Eyjamenn neituðu hins vegar að gefast upp og undir lok fyrri hálfleiks fór að lifna yfir liðinu. „Framararnir héldu sínu striki á meðan og refsuðu okkur fyrir það og náðu sanngjarnt þessu forskoti. Það kviknaði neisti hjá okkur í lok fyrri hálfleiks og við náðum að byrja að saxa á forskotið. Þannig fórum við bjartsýnir inn í hálfleik og náðum að byggja ofan á það í seinni hálfleik.“ ÍBV hélt áfram að minnka muninn eftir hlé og náði fljótlega að jafna metin. Sigtryggur segir að allt annað hafi verið að sjá til liðsins í síðari hálfleik. „Við fórum að tengjast betur, spiluðum góða sókn og náðum að hjálpa markmönnum okkar töluvert betur en í fyrri hálfleik. Þar af leiðandi náðum við að jafna tiltölulega fljótt og gera þetta að leik.“ Mikil harka færðist í leikinn á lokakaflanum og brottvísanirnar urðu nokkrar hjá báðum liðum. Eyjamenn héldu hins vegar haus þegar mest á reyndi og kláruðu ótrúlega endurkomu með þriggja marka sigri, 33-30. „Síðan var þetta hörkuleikur á lokakaflanum með kannski fullmikið af brottvísunum hjá báðum liðum. Mér fannst við vera klókir og halda vel haus á þeim kafla og uppskárum þennan geggjaða sigur,“ sagði Sigtryggur sem skoraði sjálfur fimm mörk fyrir ÍBV í leiknum. ÍBV er með fjögur stig að loknum þremur leikjum í Olís-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.