Víðir bætir við sig tveimur leikmönnum
Færeyjar

Mohamed Khalil Chaouachi og Bjartur Þór Guðmundsson hafa báðir gengið í raðir Víðis í Grill66-deildinni. Víðir eru nýliðar í deildinni og eru að leika í Grill66-deildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Mohamed Khalil Chaouachi sem er línumaður kemur til Víðis á láni frá FH en hann lék bæði með FH í Olís-deildinni í fyrra og venslafélagi FH, ÍH í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð.

Bjartur Þór Guðmundsson lék síðast með Þór tímabilið 2024/2025 í Grill66-deildinni þegar Þór tryggði sér sæti í Olís-deildinni. Bjartur Þór sem er leikstjórnandi hefur víða komið við á ferlinum og leikið meðal annars með Víking, Fram og í Færeyjum.

Víðir hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Grill66-deildinni gegn Gróttu og Haukum 2. Víðir mætir Gróttu í 32-liða úrslitum Powerade-bikarsins á morgun klukkan 16:00.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top