
Spænska stórliðið Barcelona hefur augastað á brasilíska landsliðsmanninum Hugo Bryan Monte hjá Montpellier í Frakklandi. Samkvæmt spænska miðlinum Mundo Deportivo hefur Barcelona náð samkomulagi við hinn 23 ára gamla Monte um þriggja ára samning sem tekur gildi sumarið 2027 og gildir til ársins 2030. Monte, sem er 1,94 metrar á hæð og leikur í vinstri skyttustöðunni, á samning við Montpellier til sumarsins 2029. Barcelona þarf því að greiða franska félaginu félagaskiptagjald fyrir leikmanninn. Katalóníuliðið hefur leitað að öflugum leikmanni sem getur leikið jafnt í sókn og vörn og tekið við hlutverki Timothey N’Guessan til framtíðar. Félagið hafði áður reynt að fá Simon Pytlick, Martim Costa og Thibaud Briet. Monte gekk til liðs við Montpellier frá Pinheiros í heimalandinu árið 2023 og hefur síðan vakið verðskuldaða athygli. Hann var meðal lykilmanna Brasilíu á heimsmeistaramótinu árið 2025 og hefur unnið tvo bikarmeistaratitla með Montpellier. Barcelona hefur þegar samið við spænska hægri skyttuna Marcos Fis, sem kemur til félagsins sumarið 2027 og er ætlað að fylla skarð Dika Mem.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.