Klárar hann tímabilið í deildinni?
Jón Gautur Fótó

Frammistaða Gunnars Róbertssonar, leikmanns Vals, var til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins en hann hefur farið á kostum í upphafi tímabilsins.

Gunnar skoraði 16 mörk úr 19 skotum í sigri Vals gegn HK í 3. umferð Olís-deildar karla. Fimm markanna komu af vítalínunni og Gunnar tapaði aðeins einum bolta.

Þetta var annar stórleikur Gunnars í röð en hann skoraði 17 mörk í tapinu gegn Fram í 2. umferð. Hann hefur því skorað 33 mörk í síðustu tveimur leikjum Vals.

„Við vorum að ræða hann í síðasta þætti þar sem okkar von var að þessir ungu drengir myndu taka eitt tímabil í viðbót í deildinni. En ég er meira farinn að hugsa: Klárar hann tímabilið í deildinni? Fer hann eitthvað í janúar?“ sagði Stymmi klippari í Handkastinu.

Hann telur ljóst að Gunnar verði ekki lengi í íslenska boltanum miðað við frammistöðu hans í upphafi tímabilsins.

„Hann er allavega að sýna að hann er algjör yfirburðamaður í þessu liði. Það eru fleiri ungir leikmenn, fæddir árið 2008, en njótum meðan við höfum hann. Hann verður farinn næsta sumar og verður örugglega búinn að semja við erlent félag í janúar eða febrúar.“

„Þetta er þvílíkt stykki, þessi gæi, og hann er með lyklana að Val, sérstaklega þegar Bjarni í Selvindi er ekki á svæðinu,“ bætti Stymmi við.

Sérfræðingurinn spurði síðan Björn Inga Jónsson, gest þáttarins, hvort sú staða sem nú er uppi í íslenskum handbolta væri ekki sérstök, þar sem fjölmargir ungir og efnilegir leikmenn væru farnir að láta verulega að sér kveða.

„Í fljótu bragði man ég ekki eftir svona mörgum ungum leikmönnum á þessu leveli,“ sagði Björn Ingi.

Nánar er rætt um Gunnar Róbertsson og ungu kynslóðina í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top