10 marka sigur Fram í Lambhagahöllinni
Sævar Jónasson

Í dag mættust Fram 2 og Grótta 2 í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Lambhagahöllinni.

Fram stelpur voru alltaf einu skrefi á undan í fyrri hálfleik. Eftir korter var staðan 8-5 og hálfleikstölur voru 14-12 fyrir Fram.

Gróttu stelpurnar náðu að halda í við Fram stelpurnar fyrstu 20 mínútur seinni hálfleiksins en þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum náði Fram að slíta sig frá Gróttu og klára leikinn afar sannfærandi. 9-0 kafli fyrir Fram á síðustu 10 mínútunum og lokatölur leiksins voru 28-18.

Hjá Fram 2 var Aníta Rut Eggertsdóttir markahæst með 7 mörk. Arna Sif Jónsdóttir varði 15 skot.

Hjá Gróttu 2 var Edda Sigurðardóttir markahæst með 9 mörk. Soffía Helen Sölvadóttir varði 6 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top