Óvænt tap Magdeburg fyrir Reyni Þór og félögum
Melsungen

Fimm leikir áttu sér stað í dag er 5.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar var á fullri ferð.

Fyrsti leikur dagsins fór fram er Bergischer tók á móti Füchse Berlin. Füchse Berlin tók strax stjórn á leiknum og komst í 0–2 áður en Bergischer skoraði sitt fyrsta mark. Gestirnir héldu forskotinu allan fyrri hálfleikinn og voru sérstaklega sterkir varnarlega. Bergischer átti erfitt með að finna leiðir í gegnum vörnina og Berlin fór með 15–9 forystu í hálfleik. Í seinni hálfleik náði Bergischer aldrei að minnka muninn að ráði. Berlin hélt áfram að stjórna leiknum og þegar leið á hálfleikinn fór forskotið að aukast. Mathias Gidsel var mjög áberandi og skoraði mark eftir mark á mikilvægum köflum þegar t.d. Berlin breytti stöðunni úr 24–20 í 28–21. Á lokamínútunum var sigurinn löngu orðinn öruggur. Berlin hélt áfram að bæta við mörkum og vann að lokum 37–26, eftir að hafa leitt frá upphafi til enda. Munurinn var sex mörk í hálfleik en endaði í ellefu mörkum. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Mathias Gidsel úr liði Berlín með 11 mörk og 2 stoðsendingar.

Annar leikur dagsins fór fram er Rúnar Sigtryggs og lærisveinar hans mættu Guðjóni Val og lærisveinum hans. Gummersbach byrjaði leikinn betur en Wetzlar og eftir jafnar upphafsmínútur tóku gestirnir smám saman stjórnina. Staðan var 4–4 eftir rúmar fimm mínútur en Gummersbach náði síðan góðum kafla og komst í 14–8. Þeir héldu forskotinu út fyrri hálfleik og leiddu 20–15 í hálfleik. Gummersbach byrjaði seinni hálfleikinn einnig af miklum krafti og jók forskotið hratt. Eftir tæpar 40 mínútur var staðan orðin 29–20 og útlitið erfitt fyrir Wetzlar. Wetzlar gafst þó ekki upp og náði að minnka muninn töluvert á lokakaflanum. Þeir komust meðal annars í 33–30, en Gummersbach hélt út og vann að lokum 36–33. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Tristan Kirschner úr Wetzlar með 10 mörk úr 10 skotum. Elliði Snær Viðarsson skoraði 1 mark.

Þriðji leikur dagsins fór fram er Lemgo Lippe tók á móti Erlangan. Lemgo byrjaði leikinn vel og var með frumkvæðið á fyrstu mínútunum. Heimamenn komust í 9–7 og síðar 11–10, en Erlangen hélt sér allan tímann nálægt. Um miðjan fyrri hálfleik sneru gestirnir leiknum sér í hag og eftir stöðuna 12–12 náðu þeir góðum kafla. Erlangen fór því með 18–15 forystu í hálfleik. Lemgo kom sterkt inn í seinni hálfleikinn og jafnaði í 18–18. Eftir það var leikurinn mjög jafn og liðin skiptust á mörkum. Þegar rúmar tíu mínútur voru eftir var staðan 24–24 og allt opið. Lokakaflinn reyndist hins vegar Erlangen mun sterkari. Gestirnir skoruðu fjögur mörk í röð, komust í 28–24 og héldu Lemgo síðan í hæfilegri fjarlægð. Erlangen kláraði leikinn af öryggi og vann að lokum 33–28.

Fjórði leikur dagsins var er Reynir Þór og félagar í Melsungen tók á móti Íslendingaliði Magdeburg. Melsungen byrjaði leikinn af miklum krafti og komst fljótt í 5–1. Heimamenn héldu áfram að stjórna leiknum og voru komnir með sex marka forskot, 13–7, eftir um 20 mínútur. Magdeburg reyndi að minnka muninn en Melsungen hélt forskotinu og fór með 19–14 forystu í hálfleik. Melsungen hélt áfram að vera sterkari aðilinn í seinni hálfleik og jók forskotið. Þegar um 13 mínútur voru eftir var staðan 32–24 og sigurinn virtist vera í öruggum höndum heimamanna. Magdeburg gafst þó ekki upp og átti frábæran lokakafla. Gestirnir minnkuðu muninn úr 34–25 í 35–32 og settu mikla pressu á Melsungen. Heimamenn náðu þó að halda út og tryggðu sér að lokum 37–34 sigur í hörkuleik. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 7 mörk og gaf 4 stoðsendingar, Reynir Þór Stefánsson skoraði 3 mörk og 2 stoðsendingar, Ómar Ingi Magnússon skoraði 3 mörk og Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað.

Fimmti og síðasti leikur dagsins fór fram er Flensburg tók á móti Hamburg. Flensburg byrjaði leikinn betur og komst í 6–3 eftir tæpar tíu mínútur. Hamburg vann sig þó hægt og rólega inn í leikinn, jafnaði í 8–8 og náði síðan forystunni. Um miðjan fyrri hálfleik var Hamburg komið í 12–10, en Flensburg svaraði með sterkum lokakafla, sneri leiknum sér í hag og fór með 19–16 forystu í hálfleik.Flensburg hélt frumkvæðinu í seinni hálfleik og jók forskotið jafnt og þétt. Þegar um 15 mínútur voru eftir var staðan 31–24 og heimamenn komnir með góða stjórn á leiknum. Flensburg náði mest átta marka forskoti í 34–26. Hamburg gafst þó ekki upp og minnkaði muninn á lokamínútunum. Gestirnir náðu að koma muninum niður í þrjú mörk, en Flensburg hélt út og tryggði sér að lokum 37–34 sigur. Atkvæðamesti leikmaður leiksins var Nicolaj Jorgensen með 12 mörk.

Úrslit dagsins:

Bergischer- Füchse Berlin 26-37

Wetzlar- Gummersbach 33-36

Lemgo- Erlangan 28-33

Melsungen- Magdeburg 37-34

Flensburg- Hamburg 37-34

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top