Íslendingaslagur í úrslitum sænska bikarsins
Savehof

Það var nóg um að vera á Norðurlöndunum í dag en meðal annars gátu bæði karlalið Sävehof og kvennalið Sävehof tryggt sér sæti í bikarúrslit.

Við hefjum yfirferð dagsins í Danmörku en þar fengu Skanderborg mikinn skell þegar þeir mættu Skjern á heimavelli Skjern í dag. Staðan í hálfleik var 16-9 og Skanderborg átti fá svör við öflugum leik heimamanna, Skjern stigu á bensíngjöfina í seinni hálfleik og unnu mjög svo öruggan sigur, 38-25. Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði fimm mörk úr tíu skotum og gaf fjórar stoðsendingar fyrir gestina sem eru í fimmta sæti deildarinnar með átta stig eftir sex leiki.

Í næstefstu deild kvenna mættu Rødovre liði Hadsten á útivelli í dag. Inga Dís Jóhannsdóttir skoraði fjögur mörk á meðan Thelma Melsteð skoraði eitt mark fyrir gestina en það dugði þó skammt þar sem Hadsten vann 24-20. Rødovre hafa farið illa af stað og sitja rétt fyrir ofan fallsætin.

Larvik mætti Byåsen í annað sinn á stuttum tíma í norsku úrvalsdeild kvenna en Byåsen sló Larvik úr keppni í bikarnum á dögunum en í þetta sinn komu Larvik fram hefndum og unnu góðan útisigur, 34-39. Dana Björg Guðmundsdóttir var sem fyrr í liði Larvik en skoraði ekki mark að þessu sinni. Larvik eru enn ósigraðar ásamt Tertnes og Storhamar en öll liðin eru með átta stig eftir fjóra leiki.

Í karladeildinni voru þrjú Íslendingalið í eldlínunni en þau unnu öll í dag. Sandefjord unnu Nærbø í miklum markaleik, 36-34 þar sem Sigurjón Guðmundsson átti erfitt uppdráttar og varði aðeins tvö skot af þeim tólf sem hann fékk á sig eða 17% markvarsla.

Drammen vann flottan útisigur á Sandnes, 22-30 en Ísak Steinsson átti flottan leik í marki gestanna og varði ellefu skot af þeim þrjátíu og þremur sem hann fékk á sig eða 33% markvarsla.

Að lokum unnu Viking góðan sigur á Bergsøy, 30-24. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði þrjú mörk úr fimm skotum fyrir nýliðana sem hafa farið vel af stað og hafa unnið tvo af þremur leikjum sínum. Sandefjord eru taplausir með fullt hús stiga eftir þrjá leiki spilaða á meðan Runar og Elverum eru í sætunum fyrir ofan með fullt hús eftir fjóra leiki. Drammen og Viking eru bæði með fjögur stig eftir þrjá leiki og sitja í fimmta sæti og sjöunda sæti.

Það var mikið undir hjá Sävehof í dag en bæði kvennalið og karlalið félagsins áttu möguleika að komast í bikarúrslit. Kvennaliðið tók á móti Skara á heimavelli sínum í dag þar sem Elín Klara Þorkelsdóttir var sem fyrr í liði heimakvenna. Hún skoraði fimm mörk fyrir liðið og fékk eina brottvísun að auki en því miður reyndust gestirnir sterkari að þessu sinni og unnu gríðarlega öflugan sigur, 30-33.

Á sama tíma mættust Sävehof og Ystad í Ystad. Birgir Steinn Jónsson var í liði gestanna, skoraði ekki fyrir liðið en var fastur fyrir í vörninni og fékk tvær brottvísanir. Karlaliðinu tókst það sem kvennaliðinu tókst ekki því þeir unnu Ystad, 30-34 og mæta því Kristianstad í úrslitum bikarsins. Það er því ljóst að það verður Íslendingur sem verður bikarmeistari í Svíþjóð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top