Þórsarar hafa montréttinn á Akureyri næstu mánuðina eftir frábæran 35–31 sigur á KA í stórskemmtilegum nágrannaslag í 3. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Fullt var út að dyrum í KA-heimilinu og stemningin eftir því. Leikurinn bauð upp á allt sem góður nágrannaslagur á að gera; hraða, hörku, mikla spennu og umdeild atvik. KA byrjaði af miklum krafti og komst í 8–3 eftir tæplega tíu mínútna leik. Þórsarar létu það ekki slá sig út af laginu, unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn og jöfnuðu í 9–9. Eftir það skiptust liðin á að hafa frumkvæðið og var staðan 16–16 í hálfleik. Þór byrjaði síðari hálfleikinn betur og náði þriggja marka forskoti, 21–18. Þegar rúmar 38 mínútur voru liðnar og Þór leiddi 22–20 fékk Bertram Simonsen beint rautt spjald. Dómurinn virtist býsna harður og mögulega kolrangur. KA nýtti sér liðsmuninn og komst aftur inn í leikinn. Heimamenn náðu forystunni, 24–23, og eftir það var jafnt á nánast öllum tölum. KA var einu marki yfir, 29–28, þegar rúmar tíu mínútur voru eftir. Þórsarar reyndust hins vegar sterkari á lokakaflanum. Bjarni Ófeigur Valdimarsson jafnaði í 31–31 þegar tæpar fimm mínútur voru eftir, en það reyndist síðasta mark KA í leiknum. Oliver Möller Christensen skoraði tvö mörk í röð áður en Oddur Gretarsson og Mikkel Bak Scheumann Jensen innsigluðu fjögurra marka sigur Þórs, 35–31. Dómararnir Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Pétursson voru mikið í sviðsljósinu undir lok leiks. Þeir áttu ekki sinn besta dag á flautunni og virtust á köflum óöruggir í ákvörðunum sínum þegar spennan var sem mest. Þetta var annað sigur Þórs í röð en fyrsta tap KA á tímabilinu. Þórsarar mega því með réttu kalla sig besta lið Akureyrar næstu mánuðina. Arnór Ísak Haddsson var markahæstur KA með átta mörk. William Skovager skoraði sex mörk fyrir Þór en Hákon Ingi Halldórsson og Mikkel Bak Scheumann Jensen gerðu fimm hvor. KA–Þór 31–35 (16–16) Mörk KA: Arnór Ísak Haddsson 8, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 5, Dagur Árni Heimisson 5, Morten Linder 4, Andri Freyr Friðriksson 2, Einar Birgir Stefánsson 2, Jens Bragi Bergþórsson 2, Ágúst Elí Björgvinsson 1, Bruno Bernat 1, Dagur Gautason 1. Mörk Þórs: William Skovager 6, Hákon Ingi Halldórsson 5, Mikkel Bak Scheumann Jensen 5, Bertram Simonsen 4, Brynjar Hólm Grétarsson 3, Oddur Grétarsson 3, Oliver Möller Christensen 3, Hafþór Már Vignisson 2, Jóhann Geir Sævarsson 2, Þórður Tandri Ágústsson 2.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.