Enginn tími góður fyrir mjaðmaliðskipti hjá handboltaþjálfara
Egill Bjarni Friðjónsson

Athygli vakti að Jónatan Magnússon, þjálfari KA/Þórs, var ekki á hliðarlínunni þegar liðið mætti ÍR í 3. umferð Olís-deildar kvenna í Skógarselinu um helgina.

ÍR hafði betur í leiknum, 23-16, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 10-5. KA/Þór hefur tapað fyrstu þremur leikjum sínum á deildinni og er því án stiga ásamt HK.

Ástæðan fyrir fjarveru Jónatans er sú að hann gekkst undir mjaðmaliðskipta aðgerð á miðvikudaginn og gat því eðli málsins samkvæmt ekki stýrt liðinu um helgina. Hann hefur beðið lengi eftir að komast í aðgerðina og segir hana hafa verið orðna nauðsynlega.

„Í stuttu máli þá er ég búinn að vera á biðlista eftir mjaðmaliðskiptum í ansi langan tíma. Enginn tími er góður fyrir slíkt fyrir handboltaþjálfara. Ég fékk svo símtal núna í lok ágúst um að ég kæmist að þann 16. september.“

Jónatan þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um þegar kallið kom.

„Það var aldrei spurning hjá mér hvort ég ætlaði að segja já eða nei því staðan á skrokknum mínum var orðin þannig að þetta var orðið löngu tímabært. Sumarið var sérstaklega slæmt og átti ég erfitt með að beita mér.“

Það reyndist honum erfitt að fylgjast með sínu liði úr fjarlægð gegn ÍR en Jónatan ber fullt traust til samstarfsfólks síns á meðan hann jafnar sig.

„Varðandi leikinn þá er það alltaf erfitt að vera ekki á staðnum. Ég er hins vegar með gott teymi með mér þannig að liðið var og verður í góðum höndum þangað til ég kem aftur út á gólfið.“

Ekki liggur fyrir hvort Jónatan verði kominn aftur á hliðarlínuna í næsta leik KA/Þórs þegar liðið fær Val í heimsókn 2. október. Hann vonast þó til þess og sló á létta strengi þegar Handkastið spurði hann út í mögulega endurkomu.

„Ég get eiginlega ekki svarað því núna. Það fer bara eftir því hvernig líkaminn bregst við. En ég vona það og mun reyna það ef það er mögulegt. Ég ætla að biðja Gróttuna að spila við okkur á Blönduósi, svona til að stytta aðeins rútuferðina mína,“ sagði Jónatan léttur í bragði en KA/Þór mætir Gróttu á Seltjarnarnesi í 5.umferð deildarinnar, 9. október.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top