Komum inn í þennan leik fullir sjálfstrausts
Sævar Jónasson

FH og Haukar eigast við í einum stærsta nágrannaslag íslenska handboltans annað kvöld og heyrði Handkastið í Ágústi Guðmundssyni fyrir leik liðanna en hann er að fara að upplifa sinn fyrsta nágrannaslag síðan hann gekk til liðs við FH í sumar.

FH hefur farið vel af stað á tímabilinu og Ágúst segir byrjunina gefa liðinu gott sjálfstraust fyrir stórleikinn gegn nágrönnunum.

„Já, klárlega. Við eigum aðeins inni varnarlega en við komum inn í þennan leik fullir sjálfstrausts,“ segir Ágúst í samtali við Handkastið.

Ágúst gekk til liðs við FH frá HK í sumar og fyrstu mánuðirnir í Kaplakrika hafa reynst honum vel.

„Mér hefur líkað lífið í FH mjög vel. Frábært þjálfarateymi, mikill metnaður í félaginu og mjög góð aðstaða.“

Nú bíður hans hins vegar leikur sem skipar sérstakan sess í Hafnarfirði. FH og Haukar hafa í gegnum tíðina háð marga eftirminnilega bardaga og Ágúst býst ekki við öðru en hörkuleik á fimmtudaginn.

„Ég held að það megi búast við hörkuleik. Það er yfirleitt spenna í þessum leikjum enda tvö góð lið að mætast.“

Bæði lið eru með sterka leikmannahópa en þegar Ágúst er spurður hvort þarna séu tvö bestu lið landsins að fara að mætast vill hann ekki ganga svo langt og segir of snemmt að dæma um það að svo stöddu þar sem tímabilið sé nýhafið og mörg góð lið í deildinni.

Ágúst er þó með það á hreinu hvað FH þarf að gera ætli liðið að hafa betur gegn Haukum.

„Við þurfum að vera mjög þéttir varnarlega og fá þá í erfiðar stöður. Einnig vera óhræddir við að keyra á þá og fara vel með boltann sóknarlega – og að sjálfsögðu fá fólkið okkar með okkur.“

Leikur FH og Hauka hefst klukkan 19:30 annað kvöld en fjórir leikir fara fram í Olís-deild karla. Handkastið gerir upp leikina í uppgjörsþætti beint eftir leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top