Benni stefnir á endurkomu eftir rúman mánuð
TTH Holstebro

Benedikt Gunnar Óskarsson, leikmaður TTH Holstebro, vonast til þess að geta snúið aftur á handboltavöllinn eftir einn til einn og hálfan mánuð.

Benedikt hefur verið frá keppni síðan í júlí þegar hann fékk golfbolta í höfuðið með þeim afleiðingum að hann höfuðkúpubrotnaði og fékk heilablæðingu. Blæðingin hafði áhrif á það svæði heilans sem stjórnar hægri hendinni.

Hreyfigetan í hendinni hefur batnað en tilfinningin í baugfingri og litlafingri er enn skert. Benedikt kastaði bolta með liðsfélögum sínum í fyrsta sinn frá slysinu í síðustu viku.

„Ég vonast til þess að þetta taki einn mánuð í viðbót en maður veit það ekki. Ef ekkert breytist í hendinni get ég ekki spilað. Ef hún heldur hins vegar áfram að lagast vonast ég til að geta spilað eftir einn til einn og hálfan mánuð,“ sagði Benedikt við TV Midtvest og TV 2 Sport.

Handkastið greindi frá því á dögunum að Benedikt væri kominn til Danmerkur en hann hefur verið í endurhæfingu hér á landi. Benedikt gekk í raðir TTH Holstebro frá Kolstad stuttu áður en hann lenti i slysinu.

Þjálfari TTH Holstebro er Arnór Atlason.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top