
Aganefnd HSÍ birti í dag úrskurði sína vegna þriggja mála úr Olís-deild karla og Powerade-bikar karla. Torfi Geir Halldórsson, leikmaður HK, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann á meðan ákvörðun í máli Sæþórs Arnar Garðarssonar, leikmanns ÍBV 2, hefur verið frestað. Torfi Geir fékk rautt spjald í fyrri hálfleik í leik HK og Vals í Olís-deildinni í síðustu viku. Dómarar leiksins mátu brotið falla undir reglu 8:6 b). Aganefnd úrskurðaði Torfa í eins leiks bann sem tekur gildi klukkan 12:00 á fimmtudaginn, 24. september. Þar með er ljóst að Torfi Geir missir af leik HK gegn ÍBV í 4. umferð Olís-deildarinnar á fimmtudagskvöld. HK hefur farið illa af stað á tímabilinu og er án stiga eftir fyrstu þrjá leiki sína. Mál Sæþórs Arnar Garðarssonar, leikmanns ÍBV 2, er öllu óljósara. Hann fékk útilokun með skýrslu fyrir sérstaklega hættulega aðgerð í bikarleik ÍBV 2 gegn Herði síðastliðinn laugardag. Dómarar mátu brotið einnig falla undir reglu 8:6 b), en aganefnd telur að brot Sæþórs geti verðskuldað lengra bann en einn leik. Málinu hefur því verið frestað um sólarhring og félaginu gefinn kostur á að skila inn athugasemdum áður en endanlegur úrskurður verður kveðinn upp. ÍBV 2 leikur eingöngu í Powerade-bikarnum og hefur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum. Verði Sæþór úrskurðaður í leikbann er ljóst að það gæti haft bein áhrif á þátttöku hans í næsta bikarleik, en dregið verður í 16-liða úrslitin á fimmtudaginn. Þriðja málið varðaði Bertram Simonsen, leikmann Þórs, sem fékk útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í grannaslag KA og Þórs þann 16. september. Dómarar mátu brotið falla undir reglu 8:5 c), en niðurstaða aganefndar var að ekki skyldi aðhafst frekar í málinu. Bertram fær því ekkert leikbann vegna atviksins.Sæþór gæti fengið lengra bann
Bertram sleppur við bann

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.