Einar segir ummæli Gaupa vera galin
Egill Bjarni Friðjónsson

Einar Jónsson, þjálfari Fram í Olís-deild karla, hefur svarað harðri gagnrýni Guðjóns Guðmundssonar, Gaupa, sem lét Einar heyra það í nýlegum þætti Handkastsins vegna hegðunar hans á hliðarlínunni.

Gaupi gagnrýndi Einar fyrir samskipti hans við dómara, tímaverði og eftirlitsdómara í leikjum Fram og sagði hegðunina vera ljóð á annars góðu starfi Einars með liðið.

„Mér finnst ljóður á leik Fram að því leytinu til að þjálfari liðsins, Einar Jónsson, er tuðandi í dómurum, tímavörðum og eftirlitsdómara um leið og leikurinn er flautaður á,“ sagði Gaupi meðal annars í Handkastinu. Gaupi nefndi einnig Reyni Stefánsson, formann dómaranefndar HSÍ, til sögunnar og benti á tengsl hans við Fram. Hann sagði hegðun Einars ekki eiga að líðast og að stöðva þyrfti hana.

Einar svaraði gagnrýninni í þættinum Mín skoðun hjá Valtý Birni Valtýssyni og tók alls ekki undir málflutning Gaupa. „Svona fullyrðingar eru algjörlega út úr korti,“ sagði Einar.

Einar mótmælti sérstaklega þeirri fullyrðingu Gaupa að hegðun af þessu tagi sæist hvergi í Evrópu. Hann benti á þýska handboltann og sagði þjálfara þar láta óánægju sína vel í ljós þegar þeir teldu á sér brotið. „Ég held að ég sé nú hvorki verri né betri heldur en margir þjálfarar í deildinni hér heima og þó víðar væri leitað,“ sagði Einar.

Ósáttur við að formaður dómaranefndar væri dreginn inn í málið

Einar var sérstaklega ósáttur við að Reynir Stefánsson, formaður dómaranefndar HSÍ, hefði verið dreginn inn í umræðuna. Taldi Einar að með ummælum Gaupa væri gefið í skyn að hann nyti einhvers konar sérmeðferðar vegna tengsla Reynis við Fram og að um leið væri ómaklega vegið að eftirlitsdómurum og formanni dómaranefndar.

„Mér finnst þetta bara galin ummæli,“ sagði Einar og bætti við að honum þætti umræðan til þess fallin að skapa neikvæða umræðu gegn sér og Fram sem ætti ekki rétt á sér.

Einar sagði þjálfara ganga eins langt í mótmælum og dómarar leyfðu hverju sinni. Færi hann sjálfur yfir strikið og fengi rautt spjald eða leikbann yrði hann einfaldlega að taka ábyrgð á því. Hann vísaði hins vegar alfarið á bug þeirri mynd að hegðun hans væri verri en annarra þjálfara og var sérstaklega ósáttur við að formaður dómaranefndar hefði verið tengdur við málið.

„Mér finnst helvíti lélegt að menn séu að reyna að hafa áhrif á einhver svona mál. Tala nú ekki um að blanda formanni dómaranefndar inn í það. Algjörlega galið,“ sagði Einar.

Gera má ráð fyrir því að Einar Jónsson þjálfari Fram verði vel virkur á hliðarlínunni eins og hann er þekktur fyrir, þegar Fram heimsækir Stjörnuna í Heklu-höllinni annað kvöld klukkan 18:30 þegar 4.umferð Olís-deildar karla hefst.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top