Frammistaða dómarana var hörmung og jafnvel verri en okkar frammistaða
Kristinn Steinn Traustason

4.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld með fjórum leikjum og lýkur á morgun með tveimur leikjum.

Einar Jónsson, þjálfari Fram mætir með sært lið Fram til leiks í Garðabæinn eftir tap á heimavelli gegn ÍBV í síðustu umferð eftir að hafa verið mest níu mörkum yfir í fyrri hálfleik í þeim leik. Leikur Stjörnunnar og Fram hefst klukkan 18:30 í Garðabænum og verður sýndur í Handboltapassanum eins og allir leikir Olís-deildarinnar.

Einar var í viðtali hjá Valtý Birni Valtýssyni, í útvarpsþættinum Mín Skoðun á X-inu í vikunni og þar var hann spurður út í tapið gegn ÍBV.

,,Við vorum mest 19-10 yfir og þetta voru agalegar 40 mínútur þar sem við vorum hörmulegir, það verður að segja það eins og það er og ekki það sem við viljum standa fyrir. Það er eins og það er og við verðum að læra af þessu, það er nokkuð ljóst. Við vorum mikið einum manni færri og alskonar vesen og rugl. Við náðum aldrei að stýra þessum leik.”

,,Vesen og rugl, Bíddu hvað var í gangi?” spurði Valtýr Björn og krafðist þess að Einar myndi útskýra sitt mál.

,,Mér fannst dómarnir lélegir en ég ætla ekki að segja að þeir hafi ráðið úrslitum en frammistaða þeirra var hörmung og jafnvel verri en okkar frammistaða. Ég veit ekki hvort umræðan sé með þeim hætti að það eigi að taka á mér og mínu liði með einhverskonar aðferðum. Þetta var afar sérstakt," sagði Einar meðal annars en viðtalið má heyra í þættinum sem er aðgengilegur hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top