Gunnar Magnússon þjálfari Hauka var að vonum himinlifandi eftir eins marks sigur sinna manna gegn FH í nágrannaslag 4.umferðar Olís-deildar karla í gærkvöldi en Haukar höfðu betur gegn FH, 35-34 eftir spennuþrungnar lokamínútur. Haukar voru 35-30 yfir á tímabili en FH skoruðu fjögur síðustu mörk leiksins og fengu tækifæri til að jafna metin úr lokasókninni en Grétar Ari Guðjónsson, markvörður Hauka reyndist hetja liðsins. ,,Þetta er geggjað. Að koma í Kaplakrika og vinna hérna frábæran sigur fyrir framan okkar frábæra stuðningsmenn, ótrúlegur stuðningur á pöllunum. Við erum þakklátir fólkinu sem komu og hjálpuðu okkur með þetta. Það var óþarfi að hleypa þessu upp í spennu en það skiptir ekki máli þegar þú færð tvö stig í Kaplakrika. Þetta gerði sigurinn bara sætari," sagði Gunnar Magnússon þjálfari Hauka við samfélagsmiðla Hauka eftir sigurinn. HAFNARFJÖRÐUR ER RAUÐUR EFTIR ÓTRÚLEGAR SENUR – GRÉTAR ARI HETJAN Haukar eru á toppi deildarinnar með átta stig að loknum fjórum leikjum en FH og Afturelding eru í 2. og 3.sæti deildarinnar með fimm stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.