Sjáðu rauða spjaldið sem Darri fékk í Hafnarfjarðarslagnum
J.L.Long

Það var mikil dramatík undir lok leiks FH og Hauka í 4.umferð Olís-deildar karla en Grétar Ari Guðjónsson, markvörður Hauka reyndist hetja liðsins þegar hann varði dauðafæri frá markahæsta leikmanni FH í leiknum, Ómari Darra Sigurgeirssyni.

Haukar uppskáru eins marks sigur, 35-34.

Það var ekki minni dramatíkin og lætin í fyrri hálfleik þegar Darri Aronsson braut á Ómari Darra í stöðunni 7-5 fyrir Hauka eftir tæplega 10 mínútna leik. Brotið sjálft hafði hæglega getað réttlætt rautt spjald en til að gulltryggja rauða spjaldið þá hrinti Darri, Brynjari Narfa Arndal í kjölfarið.

Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson dómarar leiksins voru sammála um að gefa Darra rauða spjaldið í kjölfarið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top