Tumi Steinn Rúnarsson sneri aftur á handboltavöllinn í kvöld eftir handarbrot þegar lið hans, HSG XeNTiS Bärnbach/Köflach, tók á móti Fuchse. Tumi lét strax til sín taka í endurkomunni en gestirnir fóru með nauman 27-26 sigur. Það voru ánægjuleg tíðindi fyrir Tuma Stein og lið hans þegar íslenski leikmaðurinn gat loksins snúið aftur á völlinn eftir að hafa verið frá vegna handarbrots. Tumi virðist ekki hafa þurft langan tíma til að finna taktinn á ný. Hann skoraði þrjú mörk og gaf tíu stoðsendingar í leiknum og kom því með beinum hætti að 13 mörkum liðsins í endurkomunni. Það dugði þó ekki alveg til sigurs. HSG XeNTiS Bärnbach/Köflach og Fuchse háðu hörkuleik þar sem aðeins eitt mark skildi liðin að þegar yfir lauk. Fuchse hafði að lokum betur, 27-26.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.