Elís Þór Aðalsteinsson hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild ÍBV sem gildir út keppnistímabilið 2027/28. Elís Þór hefur leikið lykilhlutverk með ÍBV undanfarin ár þrátt fyrir ungan aldur og átti mjög gott tímabil með liðinu á síðustu leiktíð. Hann hefur jafnframt leikið með yngri landsliðum Íslands og var síðast með U21 árs landsliðinu á heimsmeistaramótinu í sumar. Þar varð Elís Þór hins vegar fyrir alvarlegum meiðslum þegar hann sleit krossband. Hann gekkst undir aðgerð í sumar og vinnur nú hörðum höndum að endurhæfingu. „Hann stefnir á að koma tvíefldur til leiks á næsta tímabili,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍBV. Eyjamenn lýsa jafnframt yfir mikilli ánægju með að hafa tryggt sér krafta Elísar Þórs áfram og leggja áherslu á að félagið standi þétt við bakið á honum í endurhæfingunni. „Við erum afar ánægð með þetta og hlökkum til áframhaldandi samstarfs. Við stöndum þétt við bakið á Elís í bataferlinu og hlökkum til að sjá hann aftur á vellinum,“ segir enn fremur í tilkynningunni. Elís Þór hefur verið eftirsóttur leikmaður og samkvæmt heimildum Handkastsins höfðu önnur félög sýnt honum áhuga. Þá voru erlend félög með Elís Þór undir smásjánni áður en hann varð fyrir krossbandsslitunum í sumar. Nýi samningurinn var undirritaður við skemmtilega umgjörð í hálfleik á leik ÍBV og HK í Olís-deild karla á fimmtudagskvöld. Garðar Benedikt Sigurjónsson., formaður handknattleiksdeildar ÍBV, og Elís Þór gengu þá frá samningnum. HK hafði betur í leiknum eftir mikla dramatík og vann með einu marki.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.