Lúxusvandamál hjá Alfreð fyrir HM í janúar
Jonathan Nackstrand / AFP

David Späth og Andreas Wolff hafa farið frábærlega af stað í þýsku Bundesligunni og tölfræðin sýnir hversu vel Alfreð Gíslason er settur í markvarðastöðunni fyrir HM í janúar. Markus Baur telur þá eitt besta markvarðapar heims en vill ekki ganga svo langt að kalla þá besta þýska markvarðaparið frá upphafi.

Fyrstu fimm umferðir Bundesligunnar hafa enn og aftur sýnt hversu mikla breidd Þjóðverjar hafa í markvarðastöðunni.

David Späth, markvörður Rhein-Neckar Löwen og númer tvö í þýska landsliðinu, hefur varið 32,49 prósent skota sem hann hefur fengið á sig það sem af er tímabili.

Hann er þar með örlítið fyrir ofan Andreas Wolff, aðalmarkvörð landsliðsins, sem er með 32,00 prósent markvörslu.

Markus Baur, heimsmeistari með Þýskalandi árið 2007, var spurður hvort Späth og Wolff gætu jafnvel verið besta markvarðapar í sögu þýska landsliðsins.

Hann vildi ekki ganga svo langt.

„Við höfum aldrei átt í vandræðum með markvarðastöðuna. En þeir bestu frá upphafi? Ef ég horfi til dæmis á Henning Fritz og Jogi Bitter á sínum tíma þá voru þeir heldur ekkert slakir. Ég veit ekki hvort munurinn sé svo mikill,“ sagði Baur.

Eitt er þó ljóst að mati Baur. Alfreð Gíslason þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af markvarðastöðunni þegar kemur að HM á heimavelli í janúar.

„Við munum klárlega mæta með eitt besta markvarðapar heims á HM. Miðað við tölfræðina í deildinni er líklega ekkert par betra en þessir tveir.“

Baur telur Dani einnig gríðarlega vel setta á milli stanganna og nefnir sérstaklega Emil Nielsen.

„Þegar rætt er um bestu markverði heims þá er Emil Nielsen auðvitað einn þeirra. Og þeir eru heldur ekkert illa settir fyrir aftan hann.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top