Guðmundur Bragi með átta mörk í sigri – Birgir Már með þrjú í Sviss
Sævar Jónasson

Guðmundur Bragi Ástþórsson og Jón Ómar Gíslason fögnuðu sigri með Bregenz í austurrísku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið lagði Atzgersdorf, 34–27.

Bregenz var aðeins einu marki yfir í hálfleik, 16–15, en tók völdin í síðari hálfleik og vann að lokum öruggan sjö marka sigur.

Guðmundur Bragi Ástþórsson átti mjög góðan leik og skoraði átta mörk fyrir Bregenz. Jón Ómar Gíslason bætti við þremur mörkum og Íslendingarnir tveir skoruðu því samtals ellefu mörk í sigrinum.

Birgir Már Birgisson var einnig í eldlínunni með GC Amicitia Zürich í svissnesku úrvalsdeildinni. Birgir Már skoraði þrjú mörk úr fimm skotum í leiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top