Við ætlum okkur að vera í deild þeirra bestu
Emma Elísa Jónsdóttir

Ásgeir Snær Vignisson sneri aftur á handboltavöllinn með látum þegar Víkingur vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Olís-deild karla. Víkingar lögðu Þór, 36–31, í 4. umferð deildarinnar á föstudagskvöldið og Ásgeir var markahæstur heimamanna með átta mörk.

Ásgeir hafði misst af fyrstu þremur leikjum tímabilsins vegna meiðsla en hann brotnaði aðeins viku áður en keppni hófst. Hann var því að leika sinn fyrsta leik á tímabilinu og jafnframt sinn fyrsta leik fyrir Víking í Olís-deildinni.

„Þetta góður sigur hjá okkur. Við byrjuðum vel og spiluðum vel nánast allan leikinn. Það komu þarna tíu mínútur í fyrri hálfleik þar sem við fórum fram úr okkur sjálfum og misstum niður forskotið,“ sagði Ásgeir Snær í samtali við Handkastið.

Víkingar létu mótlætið hins vegar ekki slá sig út af laginu.

„Okkur fannst við allir eiga inni og sýndum sterkan karakter að brotna ekki. Við erum nýliðar í deildinni og það er áskorun að halda haus í mótlæti en gerðum það ágætlega í þessum leik.“

Ásgeir var heilt yfir ánægður með frammistöðuna og hrósaði jafnframt stuðningsmönnum Víkings.

„Frammistaðan var góð í um 50 mínútur. Það komu tæknifeilar í lok fyrri hálfleiks þar sem við þurfum bara að vera betri. En heilt yfir var þetta fín frammistaða. Mætingin á leikinn var líka góð og allur stuðningur hjálpar til.“

Ásgeir er á sínu þriðja tímabili með Víkingi en þetta er hans fyrsta með félaginu í efstu deild. Endurkoman hefði vart getað gengið mikið betur þar sem hann skoraði átta mörk og var markahæstur Víkings. „Ég sjálfur var að glíma við leiðindameiðsli þar sem ég brotnaði viku fyrir mót, sem var skellur. Það er bara gott að vera kominn aftur og fínt að geta hjálpað til.“

Þrátt fyrir átta mörk sá Ásgeir ýmislegt sem hann getur bætt í eigin leik. „Ég er þokkalega sáttur við minn leik en það eru augnablik þar sem ég missi hausinn pínu og læt dómara hafa áhrif á minn leik. Ég þarf að hafa kaldari haus og vera meira „cool“ en tilfinningarnar taka oft yfir.“

Víkingar eru nýliðar í Olís-deildinni en Ásgeir segir liðið ekki ætla að nálgast tímabilið með það eitt að markmiði að halda sæti sínu. „Það er auðvitað markmiðið að vinna sem flesta leiki og við erum ekkert feimnir við að segja að við getum unnið öll liðin. Við vorum staðráðnir í að sækja tvö stig í þessum leik. Það þarf að virða öll stig sem fást og sérstaklega fyrir nýliða í deildinni.“

Víkingur heimsækir topplið Hauka í 5. umferðinni á fimmtudaginn. „Við erum að fara í leik á móti Haukum og þeir eru gríðarlega sterkir og drillaðir. Þetta verður erfiður leikur en við ætlum ekkert að leggjast niður og verða litlir. Það er hreinlega bara bannað.“

Ásgeir hefur mikla trú á liðinu og vill að Víkingar festi sig í sessi meðal þeirra bestu.

„Ég hef gríðarlega trú á hópnum sem við erum með og þegar við erum að gera hlutina sem við erum góðir í þá erum við drullu fínir. Nú er bara að halda áfram á þessari vegferð og sækja stig því við ætlum okkur að vera í deild þeirra bestu.“

Hann minnir jafnframt á sögu handboltans hjá félaginu.

„Víkingur er stórveldi og það gleymist oft í umræðunni. Lið sem hefur verið í Evrópukeppnum og hefur unnið allt áður en það er alltaf bara talað um hvað Víkingur hefur verið mikið jójó. Vissulega þurfum við að sanna að það sé ekki rétt en sagan má ekki gleymast.“

Ásgeir er sjálfur klár í slaginn eftir erfiða byrjun á tímabilinu. „Ég er bara drullu spenntur fyrir þessu og hlakka til að spila meiri handbolta. Svo er það bara þannig að þegar við spilum vel þá erum við flottir.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top