Markmið okkar er að halda áfram að byggja grunninn að framtíðinni
Hörður)

Harðverjar frá Ísafirði unnu sinn fyrsta leik á tímabilinu síðastliðinn laugardag á Torfnesi fyrir vestan þegar þeir lögðu lið Vals 2.

Þónokkrar breytingar voru á liði Harðar fyrir tímabilið eins og hefur verið undanfarin ár. Það er því ljóst að það gæti tekið liðið einhvern tíma að slípa sig saman.

Stefán Freyr Jónsson fór í Fram, Endjis Kusners fór til Flensborg í Þýskalandi, Pavel Macovchin til Noregs, Kyrstof Hrachovec til Tékklands, Edvards Toks til Lettlands, Elgars Kusners til Þýskalands
og loks fór Petr Hlavenka í Víði.

Þeir fengu hinsvegar Lovro Kresic frá Bosníu, Igor Chiseliov frá Þór Akureyri, Ásgeir Óla Kristjánsson frá Gróttu, Óliver Örn Ísleifsson frá ÍR og loks Lazar Minic frá Finnlandi.

Við ákváðum að heyra aðeins í þjálfara liðsins hinum Portúgalska Pedro Nunes og fá viðbrögð við fyrsta sigrinum og tímabilinu sem framundan er. Pedro er að hefja sitt annað ár sem þjálfari Harðar á Ísafirði og hann kann vel við sig í faðmi fjalla blárra fyrir vestan.

"Það er alltaf gott að vinna. Drengirnir eru að leggja hart að sér þessa dagana og við áttum þennan sigur skilinn. Við erum ennþá að byggja upp liðið okkar og slípa okkur saman og við eigum eftir að verða betri á næstu vikum. Markmið okkar er að halda áfram að byggja grunninn að framtíðinni"

"Við erum til dæmis að vinna með strák eins og hann Hilmir sem er fæddur 2010 til að hann verði valmöguleiki á vellinum í næstu leikjum framundan. Fleiri ungir leikmenn, sem eru fæddir 2011 og 2012, munu fá mínútur í vetur. Við erum að vinna hart að því að geta gefið þeim tækifæri á þessu tímabili. Nýju leikmennirnir sem komu í sumar eru að leggja mjög mikið að sér á æfingasvæðinu til að aðlagast okkar leikstíl. Spennandi leiktímabil framundan" sagði hinn portúgalski Pedro Daniel Dos Santos Nunes eins og hann heitir að fullu nafni að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top