Allt öðruvísi handbolti bíður FH á Spáni
Sævar Jónasson

FH hefur leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld þegar liðið mætir Bidasoa Irun á Spáni. Aron Pálmarsson, þjálfari FH, segir mikla tilhlökkun vera í herbúðum Hafnfirðinga fyrir Evrópuævintýrinu.

FH-ingar héldu snemma af stað til Spánar og hafa því fengið góðan tíma til að koma sér fyrir og undirbúa sig fyrir leikinn. Liðið ferðaðist frá Kaplakrika á sunnudagskvöld og voru mættir til Spánar á mánudagsmorgun.

„Við fórum í næturflug á sunnudagskvöldi, millilentum í Frankfurt og vorum komnir á hótelið í hádeginu á mánudag,“ sagði Aron í samtali við Handkastið.

Góðu fréttirnar fyrir FH eru að Aron hefur úr fullskipuðum hópi að velja fyrir fyrsta leik liðsins í riðlakeppninni. Aron segir að allir leikmenn liðsins séu heilir og klárir í leik kvöldsins.

Týpískt spænskt lið

Bidasoa Irun er reynt lið og Aron segir FH-inga þurfa að vera þolinmóða gegn Spánverjunum. Hann á von á töluvert öðruvísi handbolta en FH mætir alla jafna hér heima.

„Sóknarlega eru þeir vel spilandi, hanga mikið á boltanum og klippa mikið. Týpískt spænskt system, öflugar hægri skyttur og klára miðjumenn. Varnarlega eru þeir þolinmóðir og gera fá mistök, vilja vera þéttir og treysta á skot fyrir utan.“

Aron segir ákveðna leikmenn standa upp úr hjá Bidasoa en reynsluna og leikskilninginn vera eitt helsta vopn spænska liðsins.

„Hægri skytturnar og markmaður eru þeirra lykilmenn. Heilt yfir mjög klárir og rútíneraðir handboltamenn. Góðir að losa bolta og nýta sér mistök andstæðingsins.“

Fá að vera „atvinnumenn“ í nokkra daga

FH er á ný komið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en liðið tók þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar, tímabilið 2024/2025 og Aron segir mikla tilhlökkun fylgja því að fá að mæta sterkum erlendum liðum og prófa sig við aðrar aðstæður.

„Já, mikil tilhlökkun. Gaman að fá að bera sig saman við þessi lið og spila við allt aðrar aðstæður og allt öðruvísi handbolta.“

Þátttakan snýst þó ekki eingöngu um úrslitin inni á vellinum. Aron telur reynsluna geta skilað leikmönnum FH miklu, ekki síst þeim sem hafa takmarkaða reynslu af leikjum á þessu stigi.

„Reynslu og opnar augun á mönnum hvernig aðrir gera hlutina og öðruvísi bolta. Þetta er líka gott fyrir hópinn að ferðast saman og vera „atvinnumenn“ í nokkra daga.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top