Magnús Öder Einarsson, leikmaður Fram, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann eftir útilokun í leik liðsins gegn Stjörnunni í Olís-deild karla 24. september. Dómarar mátu að Magnús hefði gerst sekur um sérstaklega hættulega aðgerð. Aganefnd HSÍ tók undir mat þeirra og úrskurðaði hann í eins leiks bann. Bannið tekur gildi á hádegi fimmtudaginn 1. október. Magnús missir því af heimaleik Fram gegn Aftureldingu í 5. umferð deildarinnar fimmtudaginn 1. október klukkan 20:30 í Lambhagahöllinni. Tvíhöfði verður í Lambhagahöllinni á fimmtudaginn en klukkan 18:00 mætast Fram og Selfoss í Olís-deild kvenna. Aganefnd ákvað að aðhafast ekki frekar vegna útilokana Darra Aronssonar hjá Haukum, Jökuls Ara Sveinssonar hjá Hvíta Riddaranum og Tjörva Týs Gíslasonar hjá Val að þessu sinni og sleppa þeir því allir við leikbann.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.