Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, var að vonum ánægður með frammistöðu sinna manna eftir sigur á Mors-Thy í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld. Valur vann ellefu marka sigur á Mors Thy 39-28 eftir að hafa verið 19-15 yfir í hálfleik. Valsmenn byrjuðu Evrópuævintýrið á heimavelli með sigri og Ágúst var sérstaklega ánægður með karakterinn og liðsheildina sem hans menn sýndu. „Ég er hrikalega ánægður með strákana, karakterinn í liðinu og frammistöðu liðsins. Varnarleikurinn fannst mér góður stóran hluta leiksins og markvarslan var sömuleiðis mjög góð. Við náðum að keyra gott tempó upp í leiknum og skora ódýr og góð mörk, bæði úr hraðaupphlaupum og úr uppstilltum sóknarleik. Þá nýttum við sjö á sex vel í fyrri hálfleik,“ sagði Ágúst í samtali við Handkastið. Framlagið kom víða að hjá Val og Ágúst var sömuleiðis ánægður með hversu stöðugur sóknarleikur liðsins var. „Sóknarleikurinn var góður og stöðugur allan tímann. Við fengum framlag frá mörgum leikmönnum og mörk úr öllum áttum. Heildarframmistaðan var mjög góð og liðsheildarbragur á hópnum. Við erum mjög sáttir með þessa byrjun í Evrópudeildinni.“ Það er hins vegar stutt á milli leikja hjá Val og næsta verkefni bíður strax á föstudaginn þegar Þór kemur í heimsókn í Olís-deild karla í 5.umferð deildarinnar. Ágúst ætlar að leyfa sínum mönnum að njóta Evrópusigursins í kvöld en segir síðan alla athygli fara á næsta verkefni. „Við njótum sigursins í kvöld og síðan vöknum við á morgun með báða fætur á jörðinni og undirbúum okkur vel fyrir leik gegn Þór í Olís-deildinni á föstudaginn. Það er stutt á milli leikja og nú snýst þetta um að hlaða batteríin og vera tilbúnir á föstudaginn.“ Þjálfarinn ber mikla virðingu fyrir Þórsurum og telur að Valsmenn þurfi að fylgja Evrópuframmistöðunni eftir ætli þeir sér sigur. „Við berum mikla virðingu fyrir Þórsurum sem hafa spilað mjög vel það sem af er tímabili og við þurfum að ná upp jafn góðum leik í þeim leik,“ sagði Ágúst.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.