Bergvin tekur við uppeldisfélaginu – Það var aldrei neinn vafi
Sævar Jónasson

Bergvin Haraldsson tók í vikunni við sem aðalþjálfari karlaliðs ÍBV eftir að Erlingur Richardsson yfirgaf félagið óvænt og tók við þýska B-deildarliðinu Minden.

Bergvin er aðeins 32 ára gamall en þekkir þó vel til starfsins hjá ÍBV. Hann hefur starfað sem þjálfari hjá félaginu frá árinu 2013, þjálfað fjölmarga yngri flokka og verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokks síðustu tvö tímabil ásamt Erlingiog Sigurði Bragasyni

„Í stuttu máli er ég fæddur og uppalinn Eyjamaður og gekk í gegnum yngri flokkastarfið hjá ÍBV með stuttu stoppi hjá KA í þrjú ár. Ég hef verið starfandi þjálfari hjá ÍBV síðan 2013 og hef þar komið að þjálfun í öllum yngri flokkum félagsins,“ sagði Bergvin í samtali við Handkastið.

Í dag er hann yfirþjálfari yngri flokka ÍBV auk þess að þjálfa 3. og 4. flokk. Hann starfar einnig sem styrktarþjálfari hjá félaginu og skólastjóri íþróttaakademíu GRV og FÍV. Bergvin útskrifaðist sem íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík árið 2023 og lauk námi í styrktar- og þrekþjálfun ári síðar.

„Mikill heiður en að sama skapi mikil áskorun“

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Bergvin því verið lengi viðloðandi þjálfun hjá ÍBV. Hann segir það sérstakt að fá nú tækifæri til að stýra meistaraflokki uppeldisfélagsins. „Af sjálfsögðu er það mikill heiður en að sama skapi mikil áskorun.“

Þegar ljóst varð að Erlingur væri á leið til Þýskalands kom fljótt til tals að Bergvin og Sigurður Bragi myndu taka við stjórn liðsins og klára tímabilið. „Þegar það kom í ljós að Erlingur væri að fara kom beint upp það samtal að við Siggi myndum taka það að okkur að klára tímabilið. Það var aldrei neinn vafi í því að taka þessa áskorun og bregðast við þeim aðstæðum sem komu upp.“

Hann kveðst ekki óttast ábyrgðina sem fylgir því að taka við liði í Olís-deildinni. „Vissulega er þetta mikil áskorun en ég er fullur tilhlökkunar fyrir því að takast á við þær áskoranir sem koma upp. Í grunninn er maður mikill ÍBV-maður og maður leggur sitt af mörkum til þess að hjálpa félaginu eins vel og maður getur.“

Þjálfað suma leikmennina frá 1. bekk

Það ætti ekki að taka Bergvin langan tíma að kynnast leikmannahópnum. Þvert á móti hefur hann þjálfað marga leikmenn liðsins árum saman.

„Ég þekki þessa peyja mjög vel. Ég hef verið inni í þjálfarateyminu síðustu tvö ár. Marga af þessum drengjum hef ég verið að þjálfa síðan í 1. bekk og hef jafnvel verið að þjálfa suma þarna í fimm til tólf ár.“

Þjálfun hefur skipað stóran sess í lífi Bergvins undanfarin ár og segir hann mikinn tíma og metnað hafa farið í starfið. „Áherslan hefur verið að hjálpa leikmönnum að þroskast sem einstaklingar og taka næstu skref í að verða betri íþróttamenn.“

Heldur áfram á sömu braut og Erlingur

Ekki er von á stórfelldum breytingum á leik ÍBV þrátt fyrir þjálfaraskiptin. Bergvin segir hugmyndafræði sína og Erlings vera mjög svipaða eftir náið samstarf undanfarin ár.

„Ég hef á síðustu árum unnið mikið með Erlingi og er okkar hugmyndafræði mjög lík. Þannig að við höldum áfram á sömu braut þó svo að nýir þjálfarar komi alltaf með einhverjar nýjar áherslur.“

Skilaboðin til leikmannanna eftir þjálfaraskiptin voru sömuleiðis einföld.

„Áfram gakk og næsti leikur á fimmtudaginn," sagði Bergvin en hann stýrir ÍBV í fyrsta skipti í KA-heimilinu í kvöld þegar KA og ÍBV mætast í 5.umferð Olís-deildarinnar. Markmið félagsins breytast heldur ekki við brotthvarf Erlings.

„Okkar markmið hefur alltaf verið að búa til og þróa leikmenn og það verður engin breyting þar á.“

Handkastið spurði Bergvin einnig út í þá umræðu að undanfarin ár hafi markvisst verið unnið að því að undirbúa hann undir að taka einn daginn við meistaraflokki ÍBV af Erlingi.

„Ég veit ekki hvort það hafi verið einhver pæling hjá Erlingi. Við náðum mjög vel saman og samvinnan hjá okkur Sigga og Erlingi var mjög góð. Vonandi hefur maður náð að læra nægilega mikið hjá honum til að halda áfram því góða starfi sem hann var með hérna hjá ÍBV,“ sagði Bergvin Haraldsson.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top