Katrín Helga með þrettán í sigri Aftureldingar
Raggi Óla

Fimmta umferð Grill66 deildar kvenna fór af stað í kvöld þegar Víkingur og Afturelding mættust í Víkinni. Afturelding var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og voru stelpurnar frá Mosfellsbæ yfir 14-18 í hálfleik. Afturelding gerði það sem þurfti í síðari hálfleik og hleyptu heimakonum aldrei nálægt sér og 25-30 sigur Aftureldingar staðreynd.

Atkvæðamest í liði Víkinga var Sara Björg Davíðsdóttir en hún skoraði tíu mörk. Ólöf Ásta Arnþórsdóttir skoraði sex og aðrar minna.

Atkvæðamest í liði Aftureldingar var Katrín Helga Davíðsdóttir en hún skoraði þrettán mörk í kvöld. Rakel Dórothea Ágústdóttir skoraði sex og aðrar minna.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top