Sýndum að við eigum heima í þessari keppni
J.L.Long

Aron Pálmarsson, þjálfari FH, var gríðarlega svekktur eftir naumt tveggja marka tap FH gegn spænska liðinu Bidasoa Irun í 1. umferð Evrópudeildarinnar í kvöld. Lokatölur 39-37 spænska liðinu í vil.

FH-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti á erfiðum útivelli í Irun og komust meðal annars í 5–3 eftir rúmlega níu mínútna leik. Heimamenn náðu hins vegar fljótlega undirtökunum og voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 18–14.

Bidasoa hélt frumkvæðinu framan af síðari hálfleik og náði mest sex marka forskoti, 28–22. FH neitaði þó að gefast upp og hélt sér inni í leiknum. Spænska liðið var fimm mörkum yfir, 39–34, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir en FH skoraði síðustu þrjú mörk leiksins og lokatölur urðu 39–37.

Aron var því bæði stoltur af frammistöðu sinna manna og svekktur yfir því að hafa ekki fengið neitt út úr leiknum.

„Ég er hundfúll að hafa tapað þessum leik. Mér fannst við gera þetta vel. Við byrjuðum leikinn fínt og mér fannst við heilt yfir spila fagmannlega. Ég er mjög stoltur af strákunum en það voru afdrifarík mistök sem urðu okkur að falli í dag,“ sagði Aron eftir leik í viðtali á samfélagsmiðlum FH.

FH fékk nokkur tækifæri til þess að setja enn meiri pressu á heimamenn en að mati Arons voru það fyrst og fremst mistök með boltann sem reyndust dýrkeypt.

„Mér fannst við ekkert vera að klikka rosalega mikið af dauðafærum, meira að við áttum að vera að refsa þegar við fengum tækifæri til þess en í staðinn vorum við að tapa boltanum. Síðan vorum við að tapa aðeins of mikið í breiddinni, varnarlega. Það er eitthvað sem við viljum alls ekki.“

Þrátt fyrir tapið var Aron ánægður með margt í frammistöðu FH gegn sterku spænsku liði.

„En effortið og spilamennskan, sóknarleikurinn frábær. Það var sama hver var inni á. Síðan var ég ánægður með 5-1 vörnina hjá okkur. Ég er ógeðslega fúll að hafa tapað þessum leik gegn þessu sterka liði en þeir eru þetta góðir og þá þarf maður að eiga helvíti góðan leik til að sigra.“

FH snýr nú aftur heim og tekur á móti Selfossi í Olís-deild karla á laugardaginn áður en næsta verkefni í Evrópudeildinni tekur við. Franska liðið Limoges kemur þá í Kaplakrika á þriðjudaginn.

Aron telur FH hafa sýnt með frammistöðunni á Spáni að liðið eigi fullt erindi í Evrópudeildina.

„Við sýndum það í dag að við eigum heima í þessari keppni og erum svekktir með tap og Valur sýndi það í gær, augljóslega, að við eigum heima í þessari keppni. Við eigum fullt erindi í þessari keppni og öll þessi lið.“

„Frakkarnir eru fyrirfram með sterkasta liðið í þessum riðli en við þurfum heldur betur á okkar stuðningsfólki að halda á þriðjudaginn og ég biðla til allra FH-inga og handboltaáhugafólks að fylla Krikann í næstu viku, eða í það minnsta að fá sem flesta. Við þurfum á stuðningi að halda,“ sagði Aron.

FH náði þessari frammistöðu á Spáni með aðeins þrjá FH-inga í stúkunni og Aron vonast því eftir allt annarri umgjörð þegar Limoges mætir í Kaplakrika á þriðjudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top